Entry: blogg eða ekki blogg... Tuesday, November 13, 2007



Vá hvað er langt síðan ég fór hingað inn síðast!! Ég er alveg búin að gleyma mínu eigin bloggi!!
Ég veit ekki hvar ég á að byrja...hvort ég eigi að byrja eða hvort ég eigi bara að enda þetta núna og segja að þetta blogg sé formlega dautt...? Ég get ekki ákveðið mig...

Jú, ætli ég skrifi nú ekki svona eins og eitt blogg fyrst ég er komin hingað...sé til um framhaldið...

Síðast þegar ég skrifaði einhverjar fréttir var ég í Færeyjum. Ég var að heimsækja vin minn sem varð að kærasta í þeirri heimsókn...jeij...


Rógvi og litli frændi hans, Jógvan.

Hann heitir Rógvi og er færeyingur. Hann kom í heimsókn til mín um daginn...var að koma í fyrsta skipti til Íslands!! Honum líkaði það bara mjög vel og er að koma aftur þann 7. des... Big Smile Við getum varla beðið!!!


Nýkomin úr bláa lóninu

 Ég var voða stressuð yfir því að strax morguninn eftir að hann kom hingað vorum við boðin í hádegismat til mömmu og pabba þar sem öll familían var komin saman (systkini mín og co. og svo mamma og pabbi). Fjölskyldunni leist bara vel á hann og honum á þau, svo það var bara hið besta mál...


Rógvi er grafískur hönnuður og tekur mikið af
myndum. Við fórum einn daginn til Þingvalla þar
sem þessi mynd er tekin.

Rógvi er annars að leita sér að vinnu hérna á Íslandi og ætlar að flytja hingað ef hann fær vinnu sem grafískur hönnuður. Hann fór í eitt viðtal sem gekk bara mjög vel, en þau geta ekki ráðið fólk fyrr en í byrjun febrúar...svo að það kemur bara í ljós hvað hin fyrirtækin segja sem hann er búinn að sækja um vinnu hjá...við vitum ekkert ennþá, bíðum bara spennt eftir svörum Smile Ef einhver ykkar veit um fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem vantar grafískan hönnuð, endilega látið mig þá vita!! Wink

Ég ætla að enda þessa færslu á mynd sem hann tók á Þingvöllum...svakalega falleg mynd!!!

Be blessed until next time...!!!


Þingvellir við sólsetur

   1 comments

Valborg
November 15, 2007   04:34 PM PST
 
Ákvað að kvitta fyrir innlitið, langt síðan ég kíkti hingað! Gaman að fá smá fréttir af þér, alveg ár og öld síðan ég sá þig síðast... úff hvenær var það nú eiginlega?
En frábært að heyra að lífið er að leika svona vel við þig, hafðu það bara gott áfram ;)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments