~ V e l k o m i n ( n )   á   h e i m a s í ð u n a   m í n a ! ~





Þú ert gestur númer:
DEUTSCH



Ég heiti Sólrún Ásta...

Jah...ég hef voða lítið að segja um
sjálfa mig...er ósköp venjuleg
24 ára stelpa með brúnt, krullað
hár og blá augu

Ég elska Jesú!! Hann er #1 í lífinu
mínu!!! Mín helsta fyrirmynd...

Ef þú vilt vita e-ð meira um mig,
þá skaltu bara lesa bloggið...

En allavega...takk fyrir að koma
hingað og endilega skrifaðu í
gestabókina mína, kommentin
eða á skilaboðaskjóðuna hérna
fyrir neðan!!

Adios amigos!!




SKILABOÐASKJÓÐAN
   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30



Um mig
Gamla síðan mín
Þýska bloggsíðan mín
Bestasti skóli í heiminum!!
Iðjublogg (bekkurinn minn)
Núverandi skólinn minn
Gestabókin mín
Besti vinur minn!



FALLEGA FÓLKIÐ
Dagný sæta
Guðrún sæta
Hanna sæta
Magga sæta
Sigga sæta
Sunna sæta
Særún sæta

GÁFAÐA FÓLKIÐ
Siggi læknanemi
Katrín læknanemi

SKEMMTILEGA FÓLKIÐ:
Englastelpurnar mínar
Svava Fitnessgella
Þorsteinn Bassi
Kibba Ó. Kynd
Þjóðarblómið
Katrín Møller
Ólöf Inger
Sólveig
Heiðdís
Rakel
Gunga
Árný

LUTHERAN DUDES:
Frú Hlín
Herra Þorgeir
Jón Ómar
Þráinn

ÚTLENDINGARNIR:
Ingunn í Norsaralandi
Janet í Grikkaralandi
Raphael Í Þýskaralandi


Viltu bætast í hópinn...?



SÍK
KFUM & K
Biblían á netinu
Kristileg lög (gítargrip)
Sögur, ljóð og vitnisburðir
Fleiri kristileg lög og gítargrip
Lindin -kristilegt útvarp
Kristileg útvarpsstöð
KSS og KSF
Jesus.org

free christian clipart



Músík.is
Tónlist.is
Gítarkennsla
Gítarstillitæki
Kristileg útvarpsstöð
Leitarvél með gítargripum
Íslensku dægurlögin (textar og gítargrip)

Ég mæli með:
góðri tónlist meðan þú ert online.
Ýttu hér til að hlusta.




Tungubrjótar á mörgum tungumálum
Gefðu hungruðum mat (ókeypis)!!
Sendu SMS fram í tímann
Flugféla Íslands
Iceland Express
Icelandair
Símaskráin
Sendu SMS
Hotmail
Mbl.is



Leikjanet.is
Leikur1.is
Miniclip leikir
Yahoo! leikir
Betra.net

Skemmtilegur leikur...

F��u ��r toggler h�r.



Norðurhjari veraldar:

The WeatherPixie




ERTU Á LEIÐINNI TIL ÚTLANDA?

Currency Converter


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed




Friday, February 09, 2007
Úff...

Allt of langt síðan síðast...ja hérna! Ég sem sagðist vera komin aftur til að blogga.

En ég ætla allavega að henda inn nokkrum línum svona í tilefni þess að það er komin helgi!!

Búið að vera brjálað að gera eins og venjulega...hvenær er ekki brjálað að gera hjá mér svosem? Jú, ef þú þekkir mig hafðir þú líklegast rétt fyrir þér...ALDREI...

Hundalífið gengur bara ágætlega. Nala er loksins hætt að ögra mér með því að pissa út um allt þó hún væri löngu búin að læra að hún ætti að pissa úti...var víst bara smá að testa mig eða eitthvað svoleiðis...
Hún er búin að læra fullt af kúnstum. Í dag lærði hún að heilsa mér en áður var ég búin að kenna henni að setjast, leggjast, rúlla, bíða og gjöra svo vel. Ótrúlega dugleg stelpa, ekki satt?

Þau Fróði eru ennþá óaðskiljanleg. Þau eru ekki ástfangin, ekki ennþá allavega...en þau hafa mjög gaman af að leika hvort við annað, bíta í eyrun á hvort öðru og sleikja hvort annað. Nei...það verða ekki hvolpar hjá þeim ef þú ert að spá í það. Fróði er hreinræktaður og Nala er blendingur og svoleiðis er ekki gott sambland ef Fróði vill fá að eignast hreina hvolpa. Þannig að við Helga getum ekki farið að taka við pöntunum frá ykkur ef það var pælingin...því miður...

En ég var aðeins að vafra á netinu núna áðan og sá þá þetta rosa sæta myndband af hvolpi sem er ekki alveg að fatta hvað spegill er...hehe...

Kíkið á það hérna.

Yfir og út.
Hundakonan.

Saturday, January 20, 2007
meira af handbolta

Ja hérna...hvað er að gerast hjá Íslendingum. Ég hefði átt að segja fleiri góð orð um þá áðan...eitthvað eru þeir að missa taktinn núna.

Eitthvað held ég að afi minn sé spenntur þessa stundina...hann fær alltaf svolítið mikinn fiðring þegar HM í handbolta er annars vegar, enda fyrrverandi landsliðsmarkmaður í handbolta. Spilaði með Val á sínum tíma og stóð sig bara mjög vel. Man eftir öllum verðlaunapeningunum hans frá árunum sirka 1945-1955 sem héngu uppi á vegg á skristofunni hans á Vogabrautinni á árum áður...

Sjá þennan link hérna...

Kv. Sólrún handboltaáhugamanneskja.


Flottur leikur

Maður getur ekki annað en verið stoltur af sínum mönnum þegar þeir standa sig svona vel á heimsmeistaramóti í handbolta. Kannski eru Ástralar bara af einhverjum undraverðum ástæðum á HM, en þeir eru með eindæmum lélegir miðað við Íslendinga. Get ekki annað en brosað þegar þeir (Ástralir) klúðra svona svakalega vörninni og sókninni og Íslendingar leika sér gjörsamlega að þeim eins og þeir séu að spila við áhugamenn...

Áfram Ísland!!


Friday, January 19, 2007
A lovely day...

Snilldardagur...ekki hægt að segja annað!

Vaknaði vel í morgun, útsofin og klár í slaginn fyrir daginn

Átti rosa góðan vinnudag þar sem ég fékk fullt af góðum kommentum um hvað hafi gengið vel hjá mér -ekki slæmt það...

Fékk mikið pepp og aukið sjálfstraust með hjálp frá ákveðnum aðila

Fór á fjármálanámskeið, kann núna fullt um mismunandi tegundir lána og vaxta og allt svoleiðis sem ég hafði ekki hugmynd um áður...

Fór í matarklúbb sem við erum nýbyrjaðar með...fékk rosa gott kjúklingalasagne og salat a la Sigga...NAMMI!!

Svo þetta var bara nokkuð vel heppnaður dagur...allavega miðað við þriðjudaginn (sjá þarsíðustu færslu...)

En svona að lokum...þetta er heilagur sannleikur:

  • Þú átt rétt á að vera þú sjálf/ur
  • Þú átt rétt á að komið sé fram við þig af virðingu
  • Þú átt rétt á að hafa eigin tilfinningar og koma þeim á framfæri
  • Þú átt rétt á að segja skoðun þína og vera ósammála öðrum
  • Þú átt rétt á að skipta um skoðun
  • Þú átt rétt á að hafa þínar eigin þarfir og biðja um það sem þú óskar þér
  • Þú átt rétt á að biðja aðra um að uppfylla þarfir þínar, en þú getur ekki  
    gert ráð fyrir að aðrir muni uppfylla þær. Þeir eiga rétt á að segja nei.
  • Þú átt rétt á að segja nei við að uppfylla þarfir annara
  • Þú átt rétt á að biðja aðra um að breyta hegðun sem gengur á rétt þinn
  • Þú átt rétt á að taka ekki inn á þig erfiðleika annarra og áhyggjur
  • Þú átt rétt á að líka ekki vel við alla aðra
  • Þú átt rétt á að vera öðruvísi en allir aðrir
    Höfundur: Janne Hejgaard

Góða nótt...ZzzzzzzZzzzzzzZzzzzzz


Nau nau nau...

Kíkið á þetta Tongue (virkar örugglega bara í dag)...

Bara á forsíðu blogdrive.com...ekki slæmt!


Tuesday, January 16, 2007
ömurlegur dagur...eða hvað?

Dagurinn leit sirka svona út:

  • Vaknaði og leit á klukkuna...hún var 9:25!! Schei**e! -Svaf heldur betur yfir mig...
  • Sá að Nala var komin uppí til mín...þegar ég fór að sofa var hún í búrinu sínu með dyrnar lokaðar! Hvernig gerðist þetta eiginlega??
  • Hleypti Nölu út en hún vildi ekki pissa...fór aftur inn. Þar pissaði hún inni í Helgu herbergi, á peysuna hennar og blað sem hún var nýbúin að kaupa, OG á rándýran sófann hans Fróða...hefði ekki getað verið betri staðir og betur tímasett!! (eða þannig...)
  • Komst ekki í sturtu, hafði ekki tíma til að laga á mér hárið eða pæla í því hvaða fötum ég ætlaði að fara í í vinnuna...henti mér í næstu föt sem lágu fyrir framan mig...auðvitað var soldið mikið af hundahárum á þeim...fór ógreidd og ómáluð í vinnuna og var þannig í allan dag...
  • Hljóp út án þess að fá mér morgunmat...gleymdi að taka með mér nesti
  • Var súper þreytt í vinnunni...geispaði endalaust og var ekki alveg að meika daginn svona þreytt og mygluð
  • Var helmingi lengur að ná öllu sem var sagt við mig...var einhvern veginn ekki að fúnkera í hugsun þennan daginn...
  • gleymdi mér í hádegishléinu í að tala við leiðbeinandann minn um ýmsa hluti, vildi vinna upp það sem ég hafði misst fyrr um morguninn, þurfti síðan að fara á fund kl 13 svo ég fékk mér engan hádegismat
  • Kom heim eftir vinnu alveg eyðilögð yfir "útsofinu" mínu, klúðurslegum degi og pissinu á Fróða sófa
  • Náði ekki að gera helminginn af því sem ég ætlaði mér að gera í dag
  • Er ekki farin að sofa ennþá þó að ég hafi ætlað mér að fara fyrr að sofa og vera búin að gera miklu meira en í gær...

Þetta er eiginlega ástæðan fyrir því að þessi dagur er búinn að vera ömurlegur. Ég nenni hins vegar ekki að velta mér lengur uppúr því þar sem ég er búin að pústa núna. Ég vil heldur hugsa um að þetta hefði alveg getað verið miklu verra, auk þess sem morgundagurinn á þá meiri möguleika á að vera betri en dagurinn í dag var fyrst hann var ekki alveg sá besti...

Setningu dagsins á Guðbjörg, leiðbeinandinn minn: Hugsaðu bara um það að þú sért vel sofin núna í staðinn fyrir að þú hefðir verið ósofin fyrr í morgun og e.t.v. hvort eð er ekki verið "á staðnum". Gleymdu því sem þú hefðir átt að vera að gera...sá tími er nú þegar liðinn.

Hugsum jákvætt, því þá gengur allt betur! Það er alveg sama hvað gerist, það er alltaf hægt að snúa því á einhvern hátt til góðs!


Sunday, January 14, 2007
Sunnudagskvöld í hundabæ

Það er sko aldeilis búið að breytast margt hjá manni við það að fá lítinn hund inn á heimilið. Það var nú heilmikil breyting þegar Fróði flutti inn með Helgu, en núna er ég sjálf með ábyrgðina á einum hvolpi og það er bara meira en að segja það. Það liggur við að maður sé komin með ungabarn inn á heimilið...snýst allt um þarfir hvolpsins.

Við Helga fórum með þau upp að Rauðavatni í dag í þvílíkum kulda. Ég fraus á puttunum og við báðar á tánum og ég held að Fróði og Nala hafi sjálf verið mjög fegin að komast inn í bíl þar sem miðstöðin var alveg að gera góða hluti þrátt fyrir að hún væri ekki ennþá búin að hitna.

Þrátt fyrir ógeðslega kuldann var voða gaman að sjá þau leika sér saman og Nala þurfti að hafa sig alla við að komast um í djúpum snjónum. Það var snilld að sjá hana hoppa eins og kanína til að komast áfram...Svo er líka alltaf fyndið að sjá Fróða snjóskrímsli þegar hann er búinn að setja trýnið ofan í snjóskafl og kíkir síðan upp. Ég náði því miður engri mynd af því en gæti reynt að setja video clip hérna inn. Veit samt ekki alveg hvernig ég fer að því, en ég reyni...

En allavega...hérna kemur ein sæt mynd af þeim sem ég tók undir stýri þar sem Helga hafði "fullt í fangi" með tvo ferfætlinga í orðsins fyllstu merkingu, eins og sjá má á þessari mynd:

Ég tók síðustu búræfingu dagsins (sjá síðustu bloggfærslu) hjá litlu dýrunum...gekk voða vel fyrir utan pínu væl í Nölu. Eftir búrið komst sko fjör í þau og þau eru heldur betur búin að leika sér að naga hvort annað í tætlur...ja, eða allavega naga hvort annað.

Jæja...ætli sé ekki best að fara að knúsa snúllurnar...

Kv. Sólrún


Friday, January 12, 2007
Hundalíf

Það er sko gaman þessa dagana í Ferjubakkanum...

Ég er búin að vera svo "heppin" eða þannig að vera veik síðustu tvo daga svo ég hef þurft að halda mig heima við. Það hefur samt komið sér ágætlega því þá hef ég getað knúsað litlu snúlluna mína og kennt henni ýmsar kúnstir. Það er alveg brilljant að sjá hvað Fróði og Nala leika sér sætt saman...þau eru sko sætust í heimi! Þau skiptast á að sleikja hvort annað, naga lappirnar, kjaftinn eða skottið á hvort öðru og hlaupa á eftir hvort öðru eins og þau fái borgað fyrir það. Það er nottla bara bíó fyrir okkur Helgu sem horfum á og hlæjum reglulega að því hvað þetta sé fyndið hjá þeim.

Núna erum við Helga að búrvenja dúllurnar. Þau þurfa nefnilega að sofa í búri á nóttunni svo þau eigi auðveldara með að vera ein í burtu frá okkur án þess að fá óstjórnlegan aðskilnaðarkvíða. Það gengur þannig fyrir sig að við setjum þau inn í sitthvort búrið, lokum og látum þau bíða þar í a.m.k. 5 mínútur. Á meðan setjum við reglulega litla nammibita inn um rimlana og hendum skó í búrið ef þau væla eða gelta. Það fyndnasta við þetta var samt að við settum búrin fyrir aftan sófann, sátum svo í sófanum sjálfar og hentum nammi inn í búrin aftan frá. Ég hefði viljað sjá þetta á video, þetta leit allavega út fyrir að vera mjög fyndið þegar við sátum í sófanum að passa okkur að þau myndu ekki sjá okkur í gegnum rimlana, vorum síðan tilbúnar með sitthvorn skóinn til að henda í búrið.

Þjálfunin gekk mjög vel svo þetta lofar allt saman mjög góðu. Eftir nokkra daga geta þau e.t.v. verið alein í búrinu án þess að þurfa nammi eða átt á hættu að það verði grýtt skó í búrið...

Eftir þjálfunina áðan voru þau dugleg að kíkja inn í búrin hjá hvort öðru. Þau voru samt sjaldnast alein heldur tróðu sér oftast bæði í sama búrið. Það má t.d. sjá á þessari sætu mynd hérna...

Kveðja frá Sólrúnu hundakonu


Thursday, January 11, 2007
Og barnið heitir...

Nala

 


Tuesday, January 09, 2007
Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn

Er ekki kominn tími til að blogga? Ég held það nú bara!!

Ég verð að byrja á nýjustu fréttunum sem eru líka þær allra merkilegustu finnst mér. Ég er nefnilega ekki lengur kona einsömul...og verð það líklegast ekki næstu 10 árin eða svo.

Já...það er spurning hvort ég segi nokkuð meira heldur láti bara þessar myndir fylgja...

Og þá spyr ég núna...hvað á barnið að heita?

Allar tillögur vel þegnar - vinsamlegast kommentið hér fyrir neðan Wink

P.S. Þetta er lítil dama, svo það verða að vera stelpunöfn Big Smile


Previous Page Next Page